Háskóladagurinn 15. mars

Háskóladagurinn verður með kynningu í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu þriðjudaginn 15. mars frá kl. 10 til 11:30. Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt, sem telur yfir 500 námsleiðir, og námsráðgjafar verða á staðnum. Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri. Allir velkomnir! www.haskoladagurinn.is www.facebook.com/haskoladagurinn www.instagram.com/haskoladagurinn